Um Sagashop

Almennar upplýsingar

Saga Shop er tollfrjáls verslun Icelandair. Í gegnum þennan vef er hægt að panta vörur fyrir flug og fá þær afhentar um borð í Icelandairvél.


Við pöntun á vefnum er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga:

  • Vörur eru afhentar um borð í Icelandair vél.
  • Við pöntun á vefnum þarf að fylla út nafn, brottfarardag, áfangastað og flugnúmer/flugfélag.
  • Panta þarf í síðasta lagi 72 klukkutímum fyrir afhendingu vöru um borð.
  • Athugið að vörurnar á netinu eru ekki allar til um borð í flugvélum Icelandair.
  • Saga Shop bæklingurinn er gefinn út fjórum sinnum yfir árið.

Kaupferli

Þegar pantað er á netinu þarf að gera pöntun þremur sólarhringum (72 klst.) fyrir brottför.

Eftir að viðskiptavinur hefur fundið vöru velur hann að setja hana í innkaupakörfu eða dregur vöruna yfir í innkaupakörfuna.

Velja skal fjölda eintaka af vörunni ef um fleiri en eitt stykki er að ræða.

Hægt er að eyða vöru úr körfu með því að velja – merkið eða bæta við eintökum með því að velja + .

Valið er klára bókun þegar viðskiptavinur er tilbúin að klára pöntunina. Fylla skal inn allar upplýsingar og velja að halda áfram. Að lokum kemur staðfesting um að pöntun hafi verið gerð.



Skil á vörum

Í flugvélum er lítið rými og stundum er eftirspurn umfram birgðir. Við biðjumst velvirðingar ef umbeðin vara er ekki til um borð. Eins árs ábyrgð er á öllum varningi í Saga Shop. Vinsamlegast geymið kvittanir. Ef vara sem keypt er reynist vera gölluð er viðskiptavinur vinsamlegast beðin um koma á Aðalskrifstofur Icelandair, alla virka daga á milli kl. 13:00 og 16:00, og fá vöru skipt gegn framvísun kassakvittunar.

Afhending og greiðslur

Aðeins við afhendingu er greitt fyrir vöruna. Vörur eru afhentar um borð í Icelandair vél.

Skilmálar Saga Shop

  • Eins árs ábyrgð er á öllum varningi í Saga Shop.
  • Gegn framvísun kassakvittunar er hægt að skipta á Aðalskrifstofum Icelandair alla virka daga á milli kl. 13:00-16:00.
  • Vinsamlegast pantið þremur sólarhringum (72 klst) fyrir brottför.
  • Í flugvélum er lítið rými og stundum er eftirspurn umfram birgðir. Við biðjumst velvirðingar ef umbeðin vara er ekki til um borð.
  • Athugið að vörurnar á vefnum eru ekki allar til um borð í flugvélum Icelandair.
  • Vinsamlegast geymið kvittanir.

Vildarpunktar í Saga Shop

Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna Vildarpunktum þegar þeir versla í Saga Shop. Framvísa þarf Vildarkortinu þegar greitt er fyrir vörur. Vinsamlegast geymið kvittanir. Nánari upplýsingar um Vildarklúbb Icelandair.

Gott að vita

Flugöryggisreglur - Hvað má versla og hvert má fara með vöruna.
Spurt og svarað-Algengustu spurningarnar og svör




Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit